Akureyrarbær skóladeild

Upplýsingavefur skóladeildar Akureyrarbæjar

Velkomin(n) á vef Skóladeildar Akureyrarbæjar

Á þessari vefsíðu má finna fréttir úr skólalífinu í Akureyrarbæ og gagnlegar upplýsingar fyrir alla þá sem að skólunum koma.

Nýjustu fréttir

Styrkmöguleikar Menntaáætlun Nordplus 2008-2011

Ágæta skólafólk og aðrir.
Norræna upplýsingaskrifstofan vekur athygli á eftirtöldum styrktarmöguleikum hjá Menntaáætlun Nordplus 2008-2011
1. Nordplus Junior: 
15. október nk. - undirbúningsheimsóknir. Ferðastyrkir til að hitta samstarfsaðila og undirbúa umsókn um skólaheimsóknaverkefni (fyrir Junior eða Sprog og kultur) fyrir umsóknarfrestinn 1. mars 2011, fyrir skólaárið 2011-2012. 
Skoða: 
http://nordplus.is/page/junior

2. Nordplus Nordiske Sprog og Kultur 
15. október nk - umsóknarfrestur fyrir tungumálaverkefni (EKKI skólaheimsóknaverkefni). Hér eru m.a. veittir styrkir til námsefnisgerðar, skipulag ráðstefna og námskeiða, stofnun samstarfsneta, útgáfu rita, orðabóka- og íðorðavinnu, og máltækniverkefna. Sjá: http://nordplus.is/page/nordplus_sprog

Hér fylgir tengill á síðu Norrænu ráðherranefndarinnar. Síðan hefur að geyma yfirlit yfir námsefni um Norðurlönd og norræn tungumál.  Síðan er hér
Sendi einnig tengil á nýja vefsíðu um Norðurlandamálin (Nordisk Sprogkoordination).  Síðan er hér

Góðar kveðjur
María


Skólabyrjun 2010 - fræðslufundur

Síðastliðinn mánudag var haldinn sameiginlegur fræðslufundur um lýðræði í skólastarfi og nemendaþátttöku fyrir starfsmenn grunnskólanna og Tónlistarskólans á Akureyri. Fundurinn var haldinn í menningarhúsinu Hofi, þar sem vel fór um 400 fundarmenn. Gunnar Gíslason fræðslustjóri setti fundinn og í framhaldi af því flutti Sigurveig S Bergsteinsdóttir formaður skólanefndar ávarp.  Fyrir kaffihlé var Ólafur Páll jónsson heimspekingur og dósent við HÍ með erindi um lýðræði í skóla. Eftir kaffihlé hélt Þóra Björk Jónsdóttir erindi um nemendaþátttöku. Þar talaði hún m.a. um þáttökustiga Arnstein>Hart>Fletcher. Einnig talaði  Þóra um rannskóknir á nemendaþátttöku frá Skotlandi og Svíþjóð. Glærur frá fyrirlestrunum má nálgast hér að neðan.

Glærur   Ólafs Páls Jónssonar Lýðræði og skóli
Glærur Þóru Bjarkar Jónsdóttur um nemendaþáttöku


Myndir frá fundinum


Nám fyrir starfsfólk grunnskóla Að vera hluti af heild

Dagana 16. til 20. ágúst verða allir starfsmenn grunnskólanna á Akureyri, aðrir en kennarar, á námskeiði er kallast Að verða hluti af heild. Alls munu um 140 manns sækja námskeiðið þ.e. allir skólaliðar, matráðar, húsverðir, stuðningsfulltrúar og fleira starfsfólk grunnskólanna.

Lesa meira

Skólabyrjun á Akureyri 2010

Sæl öll!
Næstkomandi mánudag 16. ágúst hefjum við skólastarf formlega í grunnskólum og Tónlistaskólanum með því að boða alla starfsmenn sem tök hafa á til fræðslufundar sem hefur ávallt verið tengdur þemanu mannréttindi

Skólabyrjun á Akureyri 2010
Mánudagur 16. ágúst kl. 9.00 - 12.00 í menningarhúsinu Hofi 

  • Setning - Gunnar Gíslason
  • Ávarp - formaður skólanefndar - Sigurveig S. Bergsteinsdóttir
  • Lýðræði og skóli - Ólafur Páll Jónsson heimspekingur og lektor við HÍ
  • Kaffihlé
  • Nemendaþátttaka - Þóra Björk Jónsdóttir kennsluráðgjafi í Skagafirði

Kveðjur bestar!
Gunnar Gíslason, fræðslustjóri Akureyrarbæjar


Innritun
Skólaval 2010
Skólaakur
Kennarasamband íslands
Samband.is
fíkniefnasíminn
Námsmatsstofnun
Ísland.is
Akureyrarbær
Samtaka.net
Viðurkenning skólanefndar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn